Krabbameinsfélag Árnessýslu var stofnað 29.maí 1971. Félagið heldur úti stuðningshópum fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hópanir, Brosið og Smárarnir byggja á jafningjastuðningi þar sem öllum er tekið opnum örmum og þeim mætt þar sem þeir eru staddir.
Smárarnir er einkum ætlaður fyrir karla. Megin áhersla hópsins er jafningjastuðningur, fræðsla og afþreying fyrir karla sem greinst hafa með krabbamein, eru í krabbameinsferli eða hafa lokið ferlinu. Karlmenn sem eru aðstandendur eru einnig velkomnir í Smárana.
Í Krabbameinsfélagi Árnessýslu er alltaf pláss fyrir stuðningsaðila og jákvætt og kraftmikilð fólk til virkrar þátttöku. Þú ert velkomin!
Ráðgjöf veitt í Árborg
Þann 5. nóvember 2019 var undirritaður á Sjúkrahúsinu á Selfossi samstarfssamningur milli Krabbameinsfélags Íslands, Krabbameinsfélags Árnessýslu og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) um ráðgjöf fyrir sjúklinga í krabbameinsmeðferðum.