arnessysla@krabb.is 482 1022

Brjósta­krabbamein

Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein hjá íslenskum konum og hafa lífshorfur batnað verulega undanfarin ár. Það er einnig eitt fárra krabbameina sem hægt er að greina á snemmstigum með skipulagðri hópleit. Þar sem brjóst eru mjúk líffæri sem liggja utan á brjóstkassa er oft hægt að greina mein í þeim snemma með því að fara reglulega í brjóstamyndatöku (40-69 ára) og skoða þau reglulega. Karlar geta fengið brjóstakrabbamein en um 1 karl greinist á móti hverjum 100 konum. Upplýsingar um hvernig stökkbreyting í BRCA1 og BRCA2 genum tengist aukinni hættu á krabbameinum má finna neðar á síðunni.

Helstu einkenni

  • Hnútur eða fyrirferð í brjósti, oft harður eða þéttur og sjaldan aumur. Flestir hnútar í konum á frjósemisaldri eru góðkynja en þeir afmarkast þá oft vel og eru hreyfanlegir undir fingrum.
  • Hnútur í handarkrika getur verið merki um meinvarp en algengt er að litlir eðlilegir eitlar þreifist hjá grannholda konum.
  • Inndregin húð eða geirvarta. Ef geirvarta hefur verið inndregin frá kynþroska er það eðlilegt ástand. Geirvörtur geta einnig dregist inn vegna aldurstengdra breytinga en alltaf er rétt að láta lækni meta slíkt.
  • Blóðug eða glær útferð frá geirvörtu getur verið merki um sjúkdóminn eða af saklausum toga. Dökkbrúnleit, gulleit og grænleit útferð er saklaus.
  • Exemlíkar breytingar á geirvörtu eða sár sem ekki grær þarf að skoðast af lækni.
  • Verkir og eymsli. Í einstaka tilfellum geta verkir verið fyrsta einkenni brjóstakrabbameins en þá getur einnig verið um tilviljun að ræða. Verkir og eymsli í brjóstum eru mjög algeng einkenni og oftast af saklausum toga eins og vegna áhrifa kvenhormóna. Önnur algeng orsök verkja eru frá stoðkerfinu. Það geta komið fram stingir eða verkir frá vöðvunum sem liggja frá síðunni, undir brjóstinu, bakinu og öxlinni. Millirifjagigt er einnig ein orsök verkja en þeir verkir koma frá litlu vöðvunum milli rifbeinanna. Þessir verkir geta verið mjög sárir.

Ef einkenni eru í brjóstum þá er fyrsta skref að leita til heimilislæknis / heilsugæslustöðvar sem metur þörf fyrir frekari rannsóknir og sendir beiðni ef þörf er fyrir frekari skoðun. Beiðnin skal send á Brjóstamiðstöð Landspítala, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík.

Kennslumyndband – Að skoða brjóstin sjálf

Comments are closed.