arnessysla@krabb.is 482 1022

Starfsárið 2019

Starfsárið 2019 – Krabbameinsfélag Árnessýslu

Samantekt: Enn á ný höfum við horft á félagið okkar stækka og eflast. Að mati félaga einkennist félagið af samhug, samkennd og gagnkvæmum skilningi og hefur myndast mikill kærleikur milli félaga í hópnum. Stöðugt er leitast við að mæta þjónustuþörf félaga, hlusta á óskir þeirra og finna vettvang þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Styrkveitingar frá Krabbameinsfélagi Íslands, ómetanlegir styrkir frá félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum, veitti félaginu færi til að bjóða uppá heilsueflandi námskeið og fræðslu félögum sínum að kostnaðarlausu. Einnig hefur félagið lagt áherslu á að bjóða uppá viðburði og fræðslu sem eru opnir öllum, óháð hvort þeir séu skráðir félagar og er litið á slíka viðburði sem mikilvæga auglýsingu og markaðsetningu fyrir félagið. Mætingar á bæði fræðslu, námskeið og aðra viðburði hafa verið mjög vel sóttir en þó enginn eins og BleikaBoðið sem haldið var í annað sinn í október og jókst fjöldi gesta um rúmlega hundrað milli ára.

Nokkrir nýjir viðburðir voru prófaðir á árinu, má þar nefna Sálgæslustundir sem ákveðið var að bjóða uppá í desember og voru vel sóttar. Ákveðið var að bjóða reglulega uppá slíkar stundir á nýju ári og hafa það að verklagsreglu að bjóða uppá slíka stund ef félagi fellur frá.

Janúar

  • Heimsókn frá Sigurði Böðvarssyni krabbameinslækni
  • Jóga 2x í viku

Febrúar

  • Broshittingur hálfsmánaðarlega
  • Jóga 2x í viku

Mars

  • Fjölguðum hittingum, hittumst nú annan hvern fimmtudag og annan hvern föstudag í vikunni á móti
  • Jóga 2x í viku

Apríl

  • Karlahópurinn stofnaður – hittast hálfsmánaðarlega
  • Bros hittingur hálfsmánaðarlega
  • Snyrtivörukynning
  • Jóga 2x í viku

Maí

  • Gönguhópurinn stofnaður – göngum 1x í viku
  • Golfnámskeið hófst 2x í viku
  • Bros hittingur og karlahópur hálfsmánaðarlega

Júní

  • Fyrirlestur frá Þorra sálfræðing um kvíða
  • Fyrirlestur frá Matta Ósvald markþjálfa
  • Broshittingur og karlahittingur hálfsmánaðarlega
  • Jóga 2x í viku
  • Félögum boðið út að borða á Surf&Turf – lokun á vorönninni og haldið í sumarfrí

Ágúst

  • Starfsemin hófst undir lok ágúst með Broshitting – mjög góð mæting og töluðu allir um hvað þeir höfðu saknað hópsins. Fundum fyrir miklum kærleika og samhug innan hópsins

September

  • Broshittingur og Karlahittingur hálfsmánaðarlega
  • Dvöl í Bergmáli í tvær nætur – mjög góð mæting, gist var í öllum herbergjum og flestir buðu maka sínum með. Aukning þátttakenda í ferðina var 50% milli ára.
  • Jóga námskeið hófst á ný, lokaður hópur 1x í viku – ákveðið að prófa að breyta tíma og fjölda.
  • Námskeið um svefn – Erla Björnsdóttir. Mæting mjög góð, um 30 manns
  • Fulltrúar félagsins viðstaddir kaffiboð Hsu þar sem þakkir voru færðar félaginu fyrir gjöf sem veitt var fyrr á árinu.
  • Samstarf við Ráðgjafaþjónustuna hófst, viðtöl á Selfossi 2x í mánuði.
  • BleikuTútturnar skipulagsnefnd fyrir BleikaBoðið, hófu undirbúning fyrir bleikan október
  • Formaður félagsins tók við styrk-gjöf að upphæð 500.þúsund frá Oddfellow stúlku á Selfossi

Október

  • Bleika-boðið haldið í Hótel Selfoss (mæting um 250 manns)
  • Þátttaka í BleikriMessu í Selfosskirkju. Formaður og félagi fluttu ávarp sem fjallaði um mikilvægi starfsemi félags eins og Krabbameinsfélagsins
  • Bærinn skreyttur bleikum slaufum og fánum
  • Broshittingur með bleiku ívafi og bleikum veitingum

Nóvember

  • Hefðbundinn jafningjastuðnings-hittingur aðra hverja viku. Karlahópur á þriðjudögum og opinn hópur á fimmtudögum
  • Sálgæslustundir hófust

Desember

  • Jólahlaðborð þar sem félögum var boðið í hlaðborð á Hótel Selfoss og þeir hvattir til að bjóða mökum með, sem greiddu fyrir sjálfa sig en félagið hafði fengið gott verðtilboð.
  • JólaBros með pökkum, kaffi og smákökum
  • Karlahittingur
  • Sálgæslustundir haldnar vikulega

Comments are closed.